Um Spilanet
Síðast uppfært: 1. maí 2026
Spilanet er íslenskur spilavefur með klassíska spilaleiki á íslensku. Markmiðið er einfalt: að bjóða upp á gömlu góðu leikina á einfaldan og þægilegan hátt — ókeypis, án skráninga og án truflandi auglýsinga.
Hugmyndin
Flestir okkar muna eftir því að spila Kapal eða aðra spilaleiki á tölvunni — leikir sem voru einfaldir, þægilegir og alltaf til staðar þegar maður þurfti smá pásu. Spilanet er hugsað sem nútímaleg útgáfa af þessari upplifun: hreint útlit, hröð svörun, virkar á öllum tækjum og er á íslensku.
Hvað bjóðum við upp á?
Kaplar, spil, teningaleikir, þrautir og borðleikir, til dæmis Kapall, Olsen Olsen, Vist, Rommí, Yahtzee, krossgáta, Sudoku, Mahjong, Lúdó og Sjóorrusta.
Engin innskráning, engin truflun
Spilanet þarf ekki reikning eða skráningu. Þú smellir á leik og byrjar að spila. Tölfræði og staða leikja er vistuð í þínum eigin vafra — ekkert er sent á netþjón.
Hafa samband
Hefur þú spurningar, ábendingar eða viltu auglýsa á Spilanet? Hafðu samband.